Ég ákvað að búa til nýja bloggsíðu sem er læst. Slóðin er 123.is/eyjadis. Ég yrði rosalega þakklát ef enginn myndi láta Svönu fyrrverandi hans Svenna fá lykilorðið á síðuna, ég er orðin þreytt á þessum gífurlega áhuga sem hún sýnir mér og Svenna
Spyrjið mig bara um það og ég mun láta ykkur fá það. Og keeemur ég veit að þú Svana ert búin að vera að lesa síðuna í eitthvað um hálft ár! Mér fannst það fyndið fyrst en núna finnst mér það bara krípí.
Eeeenn að öðru og skemmtilegra……
Við fórum sem sagt suður um helgina að leita okkur að hringum. Baddi kom með okkur og var andlegur stuðningur hehe. Það var einmitt hann sem fann búðina sem við keyptum hringana frá
Þeir eru sér smíðaðir 4 mm silfur hringir með nöfnunum okkar í rúnaletri höggnu utaná og dagurinn sem við trúlofuðum okkur á er grafinn inn í þá
Þeir eru ógeðslega flottir þó ég segi sjálf frá
Þeir kostuðu samt alveg 30.000 en eru alveg þess virði. Ég set inn mynd af þeim á nýju síðuna við tækifæri. Aumingja kortið hans Svenna
Við fengum þá svo í gær og settum þá upp á staðnum sem Svenni bað mín á 
Við lögðum sem sagt af stað um 1 leitið á föstudeginum og keyrðum alla nóttina. Svo lögðum við okkur í smá tíma fyrir utan Reykjavík. Svo fór allur dagurinn í búðir (Svenni gaf mér flugmannajakka og húfu eins og hann á frá army.is) og svefn og öll okkar plön um að hitta fólk létust skyndilega- sorry. Ég reyndi nú samt að hringja í Helgu og náði í Lenu. Við gistum svo í Keflavík hjá vinkonu Svenna og kærastanum hennar svo við fórum ekkert á djammið í bænum en skruppum bara aðeins út í Keflavík og bærinn er dauðari en Egs!
Á sunnudeginum fengum við okkur hamborgara á American Style (mmmmm) og fórum svo til Særúnar og Arons. Sú litla er algjör gullmoli! Vá hvað hún er yndisleg! Hehe, ég fékk meira að segja að gefa henni pela
Svenni fékk líka að máta hana aðeins og tók sig mjög vel út
Ég tók nokkrar myndir og skal setja þær á nýju síðuna við tækifæri. Svo komum við norður rétt fyrir miðnætti og ég fór strax á næturvakt
Ég var svo þreytt að það var ekki fyndið.
Já og elsku Kollu krúttið mitt…..innilega til hamingju með þína trúlofun :*